![Sigurður Pétur og Sigurður Örn]()
Nafnarnir Sigurður Örn og Sigurður Pétur útskrifuðust báðir úr doktorsnámi frá MIT-háskólanum í Cambridge við Boston í vor. Sigurður Pétur rannsakaði loftgæði í stórborgum og vann að þróun á tækni við að virkja sjávaröldur. Tæknina segir hann geta orðið næsta stig í endurnýjanlegri orkuframleiðslu.