![Kristin Hetle er framkvæmdastýra UN Women í New York.]()
„Við eigum enn gríðarlega langt í land og megum aldrei hætta að berjast fyrir mannréttindum og jafnrétti,“ segir Kristin Hetle, framkvæmdastýra UN Women í New York. „Við klæðum stelpurnar okkar ennþá í bleikt og strákana í blátt. Þannig miðlum við þessum stöðluðu ímyndum áfram til barnanna okkar, án þess endilega að vera meðvituð um það. Jafnrétti hefur áhrif á bæði kyn og bæði kyn hagnast.“