![Frá Esjunni í kvöld.]()
„Hérna er fullt af fólki og mjög mikið líf á fjallinu,“ segir Lára Halla Sigurðardóttir, blaðamaður mbl.is, sem stödd er í Jónsmessugöngu á Esju. Hún segir veður stillt en nokkur þoka sé og byrgi göngufólki að einhverju leyti sýn. Vilborg Arna Gissurardóttir er enn á fjallinu og stefnir á toppinn.