![ASOS er ein stærsta netverslun Bretlands]()
Engar pantanir eru nú teknar og sendingum seinkar hjá netversluninni ASOS í kjölfar bruna í stóru vöruhúsi fyrirtækisins í Bretlandi síðasta föstudagskvöld. Mikið tjón varð á vöruhúsinu í bænum Barnsley í Suður-Yorkshire sýslu, en það er talið innihalda um tíu milljónir kassa af fatnaði.