![]()
Björgunarsveitin Stjarnan í Skaftártungu var kölluð út um kvöldmatarleytið í dag þegar ferðamenn festu bílaleigubíl sinn í Hólmsá á Fjallabaksleið syðri, sunnan við Skaftártungu. Símasamband var lélegt en ferðamennirnir náðu loks sambandi við lögreglu sem sendi út björgunarsveitina.