![Lögreglustöðin á Ísafirði.]()
Tveir karlmenn hafa kært tvo starfsmenn lögreglunnar á Ísafirði til ríkissaksóknara vegna ætlaðrar líkamsárásar, húsbrots og hótana. Um er að ræða starfsmenn sem tóku þátt í handtöku á karlmanni í heimahúsi í bænum aðfaranótt mánudagins 17. nóvember sl.