![Fárviðri geisar á Vestfjörðum.]()
„Þetta er náttúrlega mjög slæmt, það á hellingur eftir að eyðileggjast hér í frystikistum og ísskápum. Þetta hefur auk þess mikil áhrif á störf hérna á bænum,“ segir Ásgeir Sveinsson, bóndi á Innri-Múla og formaður bæjarráðs Vesturbyggðar. Þar hefur verið rafmagnslaust frá aðfaranótt þriðjudags.