![Elín Oddsdóttir skurðhjúkrunarfræðingur sem starfar fyrir Alþjóða Rauða krossinn í Suður-Súdan.]()
Þrír íslenskir sendifulltrúar munu starfa erlendis fyrir Alþjóða Rauða krossinn þessi jól, þau Elín Oddsdóttir skurðhjúkrunarfræðingur í Suður-Súdan, Hlér Guðjónsson sem upplýsingafulltrúi í Peking og Þór Daníelsson, yfirmaður sendinefndar Rauða krossins í Mongólíu.