![Obama og Cameron hafa vafalaust átt gott spjall á rúmstokkinum í Air Force One.]()
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, sagði í dag við breska fjölmiðla að Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hefði boðið honum að hvíla sig í rúmi sínu um borð í flugvél forsetans, Air Force One. Forsetinn breiddi svo blíðlega yfir forsætisráðherrann.