![Jesse Robredo, innanríkisráðherra Filippseyja.]()
Innanríkisráðherra Filippseyja, Jesse Robredo, er týndur eftir að flugvél sem hann var farþegi í hrapaði í hafið í dag að sögn þarlendra embættismanna. Tveir aðrir eru einnig sagðir vera týndir en flugvélin, sem var af gerðinni Cessna, hafði reynt nauðlendingu á eyjunni Masbate.