![Lögreglan við bíl í ljósum logum í Belfast.]()
Sextán lögreglumenn á Norður-Írlandi slösuðust í átökum milli hópa aðskilnaðarsinna og stuðningsmanna bresku krúnunnar í Belfast í dag. Komið hefur til átaka milli hópanna allt frá því að borgarráð Belfast ákvað á fundi í byrjun desember að fækka þeim dögum sem breska fánanum er flaggað við ráðhúsið.