Veðurfræðingurinn Birta Líf Kristinsdóttir og eiginmaður hennar Heiðar Lind Hansson eignuðust son á laugardaginn síðastliðinn. Birta Líf var sett þann 15. febrúar síðastliðinn en drengurinn litli beið af sér verstu lægðirnar.
Fyrir ykkur sem eru ekki mestu sætabrauðsbörnin og vitið hvernig er að mæta í veislur þar sem eingöngu sætar syndir eru á boðstólnum – þá er þetta kannski eitthvað fyrir ykkur.
Sveitarfélögin sex sem eiga Sorpu bs. þurfa að ábyrgjast sex hundruð milljóna króna lán til að rétta af rekstur byggðasamlagsins. Til greina kemur að hækka gjaldskrá til að rétta reksturinn af. Þetta er meðal þess sem fram kom á fundi Sorpu í morgun með kjörnum fulltrúum sveitarfélaganna sem eiga Sorpu.
Gengi hlutabréfa í fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll Íslands lækkaði talsvert í dag. Alls nam lækkunin tæplega 3,7%, en gengi allra skráðra félaga lækkaði.
Eiður Smári Guðjohnsen, Freyr Alexandersson og Tómas Þór Þórðarson eru allir mjög hrifnir af Bruno Fernandes, Portúgalanum sem samdi við Manchester United í janúar.
Riðuveiki hefur verið staðfest á búi í nágrenni Varmahlíðar í Skagafirði. Riðan greindist í sýni úr kind frá bænum Grófargili í Varmahlíð en á bænum eru nú um 100 fjár. Síðast greindist riða á þessu svæði árið 2019 á bænum Álftagerði. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða.
Nokkrir slösuðust þegar bíl var ekið inn í hóp fólks þar sem karnival fór fram í bænum Volksmarsen í Þýskalandi. Ökumaður bílsins hefur verið handtekinn, en of snemmt er að segja til um hvort hann ók viljandi inn í mannþröngina eða óvart.
Tæplega 80% félagsmanna í Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) samþykkti boðun verkfallsaðgerða í atkvæðagreiðslu sem fram fór dagana 18. til 21. febrúar.
„Það má segja að allir viðbragðsaðilar séu á tánum,“ sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á Alþingi þegar Inga Sæland formaður Flokks fólksins spurði hana um viðbrögð við kórónuveirunni COVID-19.
Verkfall sorphirðufólks í Eflingu er farið að setja svip sinn á miðborgina þar sem flestar ruslatunnur eru yfirfullar af rusli eftir helgina. Rekstraraðilar eru sumir hverjir farnir að hreinsa mesta ruslið sem af þessu hlýst í grennd við fyrirtæki sín.
Samkvæmt áhættumati Sóttvarnastofnunar Evrópu aukast líkur á að tilfelli kórónuveirunnar COVID-19 komi til landa Evrópusambandsins eða evrópska efnahagssvæðisins, þar með talið Íslands, frá öðrum löndum en Kína.
Góður svefn hefur verið tengdur betri frammistöðu í íþróttum og almennri afkastagetu. Svefninn hefur líka áhrif á útlit okkar samanber orðatiltækið að fá sér fegurðarblund.
Ellý stokkaði spilin og skoðaði gengi hljómsveitarinnar Dimmu í Söngvakeppninni næsta laugardag í spáþætti sínum í gærkvöldi. Egill Örn Rafnsson, trommuleikari Dimmu og Silli Geirdal bassaleikari hljómsveitarinnar mættu í þáttinn að þessu sinni en þeir verða meðal fimm keppenda í úrslitum Söngvakeppninnar. Spáði Ellý því meðal annars að miklar breytingar í vændum hjá hljómsveitinni og sagði að óskir þeirra myndu rætast.
Nína Dagbjört Helgadóttir mætti í stúdíóið til Sigga og Loga í Síðdegisþættinum á föstudaginn og svaraði nokkrum „ógeðslega mikilvægum Eurovision spurningum“ en lag hennar Ekkó komst áfram á úrslitakvöld Söngvakeppninnar sem fer fram næstkomandi laugardag sem svokallað „eitt lag enn“ eða „wildcard“.
Engar vísbendingar eru um að fleiri en eitt tilfelli af kórónuveirunni COVID-19 hafi greinst á Tenerife og að veiran hafi breiðst út, að minnsta kosti enn sem komið er. Ekki er því mælt gegn ferðum Íslendinga til Tenerife, að sinni. Þetta er meðal þess sem fram kemur í stöðuskýrslu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra vegna veirunnar sem gefin var út eftir hádegi.
Lögreglumaður hefur verið dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi við handtöku á karlmanni fyrir framan Irishman Pub á Klapparstíg í mars í fyrra.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra nýsköpunarmála áformar að leggja niður Nýsköpunarmiðstöð Íslands (NMÍ) um næstu áramót og finna þeim verkefnum sem þar eru unnin í dag og til stendur að halda áfram að vinna, nýjan farveg.