Fjöldi kórónuveirutilfella fer hratt hækkandi í Suður-Kóreu og segja yfirvöld þar í landi að tilfelli hafi tvöfaldast á einum degi frá föstudegi til laugardags.
Flestum þætti það væntanlega galin hugmynd að ganga þvert yfir landið í febrúar en það er pólski ofurhuginn Lukasz Supergan einmitt að gera þessa dagana. Hann hefur að mestu verið heppinn með veður en þurfti að halda til í baðherbergi í skála þegar óveðrið gekk yfir á dögunum.
Maður sem grunaður er um tilraun til vopnaðs ráns í verslun úrsmiðsins Georgs V. Hannah í Reykjanesbæ var í gær úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Hann réðist inn í verslunina vopnaður öxi. Þetta staðfestir Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjórinn á Suðurnesjum, í samtali við mbl.is.
Bíll valt um klukkan 16 í dag við Suðurbraut í Hafnarfirði. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu valt bíllinn svo að segja inn í nærliggjandi garð.
Umboðsmaður Alþingis segir að ekki hafi verið tekin nægjanlega skýr afstaða til þess að hvaða marki ætlunin var að hverfa frá upphaflegri stefnumörkun um aðgang almennings að upplýsingum um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. sem mótuð var við setningu laga nr. 6/2007 og fylgt eftir í frumvarpi því sem síðar varð að lögum nr. 23/2013.
Íslandsbanki hefur samþykkt kauptilboð í Cintamani. Að sögn Margrétar Ásu Eðvarðsdóttur, sem hefur umsjón með sölunni hjá bankanum, er gert ráð fyrir því að rekstur verslunarinnar haldi áfram.
„Við viljum að þetta útivistarsvæði fái að njóta sín og að þú horfir ekki á byggingar alveg út í eyju,“ segir Halldór Páll Gíslason, formaður Hollvinasamtaka Elliðaárdals.
Við Borgarbraut í Borgarnesi stendur heillandi hundrað ára gamalt hús sem hjónin Selma Björk Petersen og Ellert Gissurarson keyptu fyrir fjórum árum. Húsið nýta þau sem sumarhús fyrir fjölskylduna og hafa dundað sér við að gera það upp síðustu ár. En í garðinum stendur annað hús sem vakti athygli blaðamanns þegar hún lagði leið sína á hinn víðfræga Bjössaróló síðasta sumar. Húsið er nefnilega nákvæm eftirlíking af hinu eina sanna múmínhúsi.
Ljósmyndarinn Gígja Einarsdóttir er bóndadóttir af Mýrunum. Hún er alin upp eins og indíánastelpa og segir það mikil forréttindi að geta týnt sér í náttúrunni án þess að fólk væri að spá í hvar hún væri niðurkomin.
Kristján Viggó Sigfinnsson, sextán ára gamall Ármenningur, sló í dag 23 ára gamalt piltamet í hástökki innanhúss þegar hann sigraði í greininni á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum innanhúss í Kaplakrika með því að stökkva yfir 2,15 metra.
Bjarni Benediktsson, ráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, vill halda áfram sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Bjarni segir að nú sé horft til framtíðar eftir áratuga endurreisnarstarf og að hann sé spenntur fyrir því sem bíður.
Arsenal og Everton eigast við í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta klukkan 16:30 á Emirates-vellinum í London. Everton er í tíunda sæti með 36 stig og Arsenal í sætinu fyrir neðan með 34 stig.
Maður var á fimmtudag í Héraðsdómi Reykjavíkur sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr 218. gr. almennra hegningarlaga fyrir að hafa slegið samstarfsmann sinn í tvígang í andlitið, með þeim afleiðingum að brot kom í kinnbein brotaþola.
Bolludagurinn er á morgun en þessir tveir lögregluþjónar hjá lögreglunni á Suðurnesjum tóku forskot á sæluna og ákváðu að gefa kleinuhringjunum frí í dag.
Breska leikkonan Rita Tushingham heldur því fram í fróðlegu samtali í The Guardian að hún hafi verið fyrsta hvíta konan til að kyssa svartan karlmann í kvikmynd; A Taste of Honey eftir Tony Richardson frá árinu 1961.
Konudagurinn hefur verið annasamur í blómabúðinni 18 rauðar rósir. Að sögn Sigríðar Gunnarsdóttur, eða Diddu eins og hún er jafnan kölluð, er um einn stærsta dag ársins að ræða hjá blómabúðinni.
Sandstormur ríður nú yfir Kanaríeyjar og er Ólafur Stephensen einn Íslendinga sem eru strandaglópar á paradísareyjunni Tenerife. „Ég vaknaði í nótt við fjúkandi sólhlífar og garðhúsgögn. Nú er ég að skemmta mér við að horfa á gervigras flettast hérna af íþróttavelli í rólegheitunum,“ segir hann.