![Ekki hafa allir foreldrar tök á að senda börn sín í sumarbúðir eða á sumarnámskeið.]()
Um 100 fjölskyldur fá aðstoð frá Hjálparstofnun kirkjunnar árlega vegna kostnaðar við sumarnámskeið barna, sumarbúðir eða annað sem tengist sumarfríinu. Í flestum tilvikum er um að ræða atvinnuleitendur eða fólk í láglaunastörfum sem ekkert hefur aflögu til að gera börnum sínum dagamun á sumrin.