![Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir málflutning Seðlabankans ekki vera boðlegan.]()
Málflutningur Seðlabankans varðandi kaupmáttarákvæði nýundirritaðra kjarasamninga er ekki boðlegt. Þetta sagði Ragnar Þór Ingvarsson, formaður VR, í Kastljósinu í kvöld. „Seðlabankinn hefur alltaf gert það sem honum sýnist,“ sagði hann og kvað verkalýðshreyfinguna ekki treysta bankanum.