![Fyrirhugað er að íbúakjarni fyrir fatlaða rísi í Hagaseli.]()
„Það er ekki búið að taka neina endanlega ákvörðun. Við óskum eftir fjölda lóða því við ætlum að byggja upp búsetuúrræði fyrir á annað hundrað manns,“ segir sviðsstjóri Reykjavíkurborgar. Kurr er meðal íbúa Seljahverfis í Breiðholti vegna fyrirhugaðrar byggingar búsetukjarna fyrir fatlað fólk í Hagaseli.