![Í dag fór fram námskeið í skyndihjálp og brunavörnum hjá starfsfólki KFUM og KFUK en það er hluti af undirbúningsnámskeiðum sumarsins]()
Nú þegar sumarfríið blasir við stendur undirbúningur fyrir sumarstarf KFUM og KFUK sem hæst. Rúmlega hundrað einstaklingar starfa í sumarbúðunum og á leikjanámskeiðum félagsins og þegar eru rúmlega 2000 börn skráð til leiks. Í dag hittist starfsfólkið og fékk kennslu í skyndihjálp og brunavörnum.