![Matsfyrirtækið Moody's setti lánshæfiseinkunn Alcoa í ruslflokk í dag.]()
Lánshæfiseinkunn bandaríska álfyrirtækisins Alcoa var í dag færð niður í ruslflokk af matsfyrirtækinu Moody's. Frá þessu greindi Bloomberg-fréttastofan fyrr í kvöld. Eru lánshæfishorfurnar taldar stöðugar sem þýðir að ekki séu líkur á að lánshæfiseinkunnin hækki í bráð.