![Akureyri]()
Fulltrúi Vinstri grænna í bæjarstjórn Akureyrar hvetur bæjaryfirvöld til að skoða þann möguleika að taka á móti alla vega hluta þess fjórtán manna hóps sem flóttamannanefnd hefur lagt til að boðið verði hæli hér á landi á næstu mánuðum. Þannig geti bærinn lagt sitt af mörkum til mannúðarmála.