![Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ, Páll Halldórsson, varaformaðu BHM og Benedikt Árnason, efnahagsráðunautur forsætisráðherra.]()
„Menn verða að stilla kröfum í hóf og í samræmi við þá stöðu sem uppi er hverju sinni,“ sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra að loknum fundi með aðilum vinnumarkaðarins sem haldinn var í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í dag. Á fundinum var rætt um gerð kjarasamninga.