Síðastliðin mánaðarmót var virkjuð sérstök viðbragðsáætlun vegna læknaskorts á lyflækningasviði Landspítalans. Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að ekki verði hægt að aflétta ástandinu strax. Í morgun voru kynntar aðgerðir sem miða að því að bæta stöðu lyflækningasviðs spítalans.
↧