![Úr safni.]()
Starfsmaður Keflavíkuflugvallar fékk á sig skordýraeitur þegar hann opnaði farangursrými flugvélar nýverið. Maðurinn veiktist og daginn eftir var hann orðinn óvinnufær. Hann leitaði til læknis og var í framhaldinu lagður inn á sjúkrahús. Lögreglan tekur fram að um óhapp hafi verið að ræða.