Þorpið hvarf undir aurskriðu
Þorpið La Pitada i Mexíkó er rústir einar eftir að hitabeltisstormurinn Manuel fór þar yfir í síðustu viku. Talið er að 68 íbúar þorpsins hafi grafist undir aurskriður sem féllu í kjölfar stormsins.
View ArticleFékk á sig skordýraeitur og veiktist
Starfsmaður Keflavíkuflugvallar fékk á sig skordýraeitur þegar hann opnaði farangursrými flugvélar nýverið. Maðurinn veiktist og daginn eftir var hann orðinn óvinnufær. Hann leitaði til læknis og var...
View ArticleÞolir ekki stífar endurgreiðslur
Landsbanki Íslands yrði gjaldþrota ef bankinn væri þvingaður til að standa við stífa áætlun um endurgreiðslur erlenda skulda frá og með byrjun næsta árs. Þetta segir í frétt í breska blaðsins Guardian...
View ArticleSprengjugengið verðlaunað
Sprengjugengi Háskóla Íslands hlaut viðurkenningu Rannís 2013 fyrir vísindamiðlun. Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra afhenti Sprengjugenginu viðurkenninguna við opnun Vísindavöku í dag.
View ArticleObama og Rouhani ræddu saman
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, og Hassan Rouhani, forseti Írans, ræddu saman í síma í dag. Þetta er í fyrsta skipti í meira en 30 ár sem þjóðhöfðingjar landanna ræðast við.
View ArticleSá neyðarblys á lofti í Þórsmörk
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar undir Eyjafjöllum, í Landeyjum og frá Hellu og Hvolsvelli voru kallaðar út fyrr í kvöld til leitar við Langadal í Þórsmörk og í Básum. Manneskja sem...
View ArticleSwift „passaði ekki“ í hópinn
Bandaríska söngkonan Taylor Swift „passaði ekki“ í hóp englanna sem sýndu nýjustu nærfatalínu Victoria's Secret í New York í síðustu viku.
View ArticleBreskur hommi ákærður í Úganda
Réttarhöld hefjast í Úganda á morgun yfir 65 ára Breta sem var ákærður fyrir að standa fyrir „dreifingu á klámfengnu efni“ eftir að lögregla fann í einkasafni hans myndir af honum að eiga kynmök við...
View ArticleHlekkjaður á veröndinni með kjúkling um hálsinn
Félagsráðgjafi í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum hefur verið handtekinn eftir að fósturbarn hennar fannst hlekkjað við verönd á heimili hennar með dauðan kjúkling um hálsinn.
View ArticleÉljagangur og takmarkað skyggni
Snjókoma og skafrenningur verður á fjallvegum á Norðvesturlandi fram eftir degi og takmarkað skyggni. Éljagangur á heiðum norðanlands í dag. Einnig er éljagangur suðvestan- og vestantil fram á kvöld.
View ArticleKolbeinn fer ekki til Króatíu
Kolbeinn Sigþórsson ferðast ekki með íslenska landsliðinu til Króatíu í dag vegna þeirra meiðsla sem hann varð fyrir í fyrri leik liðanna á Laugardalsvelli á föstudag.
View ArticleElding raskaði talstöðvarsambandi
Elding sást á himni í Reykjavík um kl. 20 mínútur fyrir sex í morgun. Eldingunni sló niður í loftnet leigubílastöðvarinnar BSR sem er á Hótel Sögu og raskaði talstöðvarsambandi.
View ArticleMilljarða fyrirtæki í Svíþjóð
Þórður Erlingsson og Gunnar Búason hafa á síðustu 6 árum byggt upp fyrirtækið Inexchange í Svíþjóð, en það er í dag metið á um 5,5 milljarða. Fyrirtækið hannaði rafrænt kerfi fyrir reikninga sem getur...
View ArticleBöl að geta ekki keypt morgunöl
Lögin í Delray Beach í Bandaríkjunum eru skýr; það er bannað að selja áfengi fyrir hádegi á sunnudögum. Ölþyrstir morgunhanar verða því að bíða þar til klukkan slær 12 eða fara með sín viðskipti...
View ArticleHorfðu á ljón drepa ljónynju
Gestir í dýragarði í Dallas í Texas fylltust skelfingu þegar fullorðið ljón í garðinum réðst skyndilega á ljónynju og drap hana. Stjórnendur dýragarðsins segjast aldrei vita til að svona atvik hafi...
View ArticleStunda Quiz Up í um 40 mín. á dag
Daglegir notendur spurningaleiksins Quiz Up, sem slegið hefur í gegn á heimsvísu, eru nú um 500.000 talsins og meðalnotandinn spilar leikinn í kringum 40 mínútur á dag; kynjaskiptingin virðist nokkuð...
View ArticleNær valdalaus borgarstjóri
Borgarstjórn Toronto í Kanada hefur samþykkt að svipta Rob Ford borgarstjóra nær öllum völdum sínum. Hann er rúinn trausti eftir að upplýst var um vímuefnaneyslu hans, en neitar að segja af sér.
View ArticleFór eina veltu og ók til Búðardals
Rjúpnaveiðimaður á lítilli jeppabifreið komst í hann krappann í gær þegar hann missti stjórn á bifreiðinni í hálku með þeim afleiðingum að hún hafnaði utan vegar og fór eina veltu.
View Article„Hjálpið okkur - við þurfum mat“
„Hjálpið okkur. Við þurfum mat“ stendur stórum stöfum rétt við afskekkt þorp á Filippseyjum. Þorpið er eitt þeirra sem hefur orðið skelfilega úti í fellibylnum Haiyan.
View ArticleSeljaskóli og Langholtsskóli sigruðu
Seljaskóli og Langholtsskóli komust áfram í Skrekk, hæfileikakeppni grunnskólanema í Reykjavík sem hófst í Borgarleikhúsinu í kvöld. Átta skólar tóku þátt í kvöld, en 23 skólar hafa skráð sig til...
View Article