Skýr skilaboð voru gefin í kröftugum mótmælum við ráðhúsið í morgun. Börnin í miðborginni vilja fá félagsmiðstöð og engar refjar. Jón Gnarr, borgarstjóri, tók vel í þessa bón þeirra og lofaði börnunum félagsmiðstöð þar sem Dagur Eggertsson sagði jafnframt að hægt yrði að gera allskonar skemmtilegt.
↧