![Útvarpsmastrið á Gufuskálum var reist árið 1963.]()
Útvarpsmastrið á Gufuskálum á Snæfellsnesi hefur verið ljóslaust í rúmt ár. Um er að ræða hindrunarljós fyrir flugvélar sem eru biluð en flugvöllur er í næsta nágrenni við mastrið. Mastrið er það hæsta sinnar tegundar í Evrópu, eða 412 metra hátt, og er rekið af Ríkisútvarpinu.