![Stefanía Harðardóttir.]()
Stefanía Harðardóttir er 25 ára gamall leikskólakennaranemi sem starfar sem leiðbeinandi á leikskóla í Hafnarfirði. Hún hefur miklar efasemdir um námið út frá fjárhagslegum sjónarhóli. Í pistli sem hún skrifaði á Facebook segir hún í raun að þetta sé versta fjárhagslega ákvörðun sem hún hafi tekið.