![Brynjar Karl Birgisson.]()
Brynjar Karl er 11 ára gamall einhverfur drengur sem dreymir um að heimsækja LEGO-verksmiðjurnar í Danmörku, en hann hyggur á smíði líkans af Titanic. Til þess þarf mörg hundrað þúsund kubba og í myndskeiði á YouTube biðlar Brynjar Karl til danska leikfangaframleiðandans að bjóða sér í heimsókn.