$ 0 0 Knaparnir sem sýndu listir sínar í reiðhöllinni í Víðidal í dag voru heldur smáir í hlutfalli við fákana sem þeir sátu en öruggir í fasi. Hin árlega sýning Æskan og hesturinn er uppskeruhátíð margra ungra knapa sem æfa atriði með löngum fyrirvara.