![Björgunarsveitarmenn horfa niður með Bleiksárgljúfri á þyrlu Landhelgisgæslunnar sem tók þátt í leitinni.]()
Leitarhópar í Fljótshlíð eru hættir störfum í dag en haldið verður áfram á morgun með smáu sniði. Sveinn K. Rúnarsson yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli segir að mannshvarfsmálum sé í raun aldrei lokað endanlega, á meðan ekkert finnst. Þrotlaus leit í tæpa viku hefur engu skilað.