![Hanna Birna Kristjánsdóttir]()
Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, tók til máls á Alþingi á tólfta tímanum í kvöld og tilkynnti þingheimi um ákvörðun Flugvirkjafélags Íslands, þ.e. að aflýsa verkfalli sem hefjast átti í fyrramálið. Hún sagðist fagna þessari ákvörðun og vonast til að samningar náist án lagasetningar.