![Fulltrúi malasísku sendinefndarinnar kannar annan flugritann úr MH17 eftir að aðskilnaðarsinnar í Donetsk létu þá af hendi.]()
Uppreisnarmenn í austurhluta Úkraínu afhentu í morgun malasískum sérfræðingum tvo flugrita úr vél MH17 sem skotin var niður á svæðinu. Vonast er til að þeir geymi upplýsingar um nákvæma tíma- og staðsetningu flugvélarinnar þegar hún var skotin niður, og raddupptökur úr flugstjórnarklefa.