![Kvikugangurinn liggur frá Bárðarbungu til norðurs í átt að Öskju.]()
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur telur líklegast að eldgos verði á milli Dyngjujökuls og Öskju. Hann segir að núna stefni kvikugangurinn beint að megineldstöðinni Öskju. Hann bendir líka á að kvikan sé ekki bara á leið til norðurs heldur einnig niður á við.