![]()
Ekki dregur úr eldgosinu í Holuhrauni en samkvæmt athugunum á vettvangi er gosvirkni svipuð og undanfarna daga. Hraun rennur til austurs og breiðir lítill hluti þess úr sér til norðurs en megintungan rennur áfram í farveg Jökulsár á Fjöllum og flæmist áin til austurs undan hrauninu.