![Land Roverinn sást í vefmyndavél lögreglunnar á Selfossi.]()
Nærri fimmtíu ára, númerslaus, Land Rover sem Félag íslenskra bifreiðaeigenda tilkynnti að stolið hefði verið fyrr í vikunni er kominn í leitirnar. Samkvæmt upplýsingum frá FÍB var bíllinn tekinn í góðri trú og er unnið að úrlausn málsins. Málið leystist eftir að komið var auga á bílinn í vefmyndavél.