![Maðurinn hefur verið ákærður fyrir morð, kynferðisbrot og sifjaspell.]()
Þegar hinn 44 ára gamli Calvin Mcintosh mætti með ungabarn á bráðamóttökuna í Georgíuríki í Bandaríkjunum, hringdu heilbrigðisstarfsmenn strax í lögregluna. Barnið var 15 mánaða gamalt og var það úrskurðað látið á staðnum, og upp úr því hófst rannsókn á misnotkun Mcintoshs á barninu auk fleiri barna.