![Sænsk björgunarþyrla, sem tekur þátt í leitinni, tekur eldsneyti.]()
Norskrar Herkúles herflugvélar er enn saknað, en hún hvarf af ratsjá rétt fyrir klukkan þrjú í gær. Vélin var að koma frá Evenes í Noregi og átti að lenda í Kiruna í Svíþjóð. Umfangsmikil leit stendur nú yfir að vélinni. Um borð í henni voru fimm menn, allir norskir.