![Jennifer Lawrence í hlutverki sínu sem Katniss Everdeen í Hungurleikunum.]()
Þá er það staðfest að Hungurleikarnir slógu met fyrstu sýningarhelgina í Bandaríkjunum, því myndin hefur halað inn 155 milljón dali síðan hún var frumsýnd á föstudag. Aldrei hefur mynd, sem ekki er framhaldsmynd, velt jafnmiklu á frumsýningarhelgi þar í landi.