![]()
Þetta þarf að ganga hratt og vel fyrir sig. Við viljum geta sýnt fólki Hamarshöllina á Blómstrandi dögum um miðjan ágúst, segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði. Þar verður reist loftborið íþróttahús á næstu mánuðum, fyrsta mjúkhýsið hér á landi.