![David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segist vilja gegna embættinu til ársins 2020.]()
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segir í viðtali við sunnudagsútgáfu breska dagblaðsins Telegraph að hann vilji vera forsætisráðherra næstu sjö árin, til ársins 2020. Hann þurfi að koma endurbótum í gegn, þar á meðal þurfi að endurskoða samband Bretlands við Evrópusambandið.