![Sigþór Guðbrandsson hefur staðið vaktina síðustu daga hjá Rarik í Ólafsvík.]()
Síðustu dagar hafa verið annasamir hjá Sigþóri Guðbrandssyni, starfsmanni Rarik í Ólafsvík, en hann er ábyrgur fyrir því að dísilrafstöðvar fyrirtækisins framleiði rafmagn. Allt rafmagn í Snæfellsbæ hefur verið framleitt með varafli í heila viku. Sigþór var á vakt fyrstu tvo sólarhringana.