![Leitað er að gistiplássum fyrir strandaglópa í Vík í Mýrdal.]()
„Hótelin eru orðin full og það er verið að reyna að finna einhverjar kompur til að koma fólki fyrir,“ segir Elías Guðmundsson, eigandi Hótels Kríu og Hótels Víkur, en bæði hótelin eru staðsett í Vík í Mýrdal og þar eru hátt í 400 gistipláss. Hann er líka með tuttugu íbúðir til útleigu í bænum og þær eru allar orðnar fullar.