Quantcast
Channel: mbl.is - Forsíðufréttir
Viewing all 19525 articles
Browse latest View live

„Við vorum bara tveir eftir“

$
0
0
Lögreglumaður stendur vörð utan við veitingahúsið þar sem Tobias R. skaut níu til bana. Fórnarlamb skotárásarinnar í Hanau í Þýskalandi lýsir árásinni á átakanlegan hátt í myndbandsviðtali við fréttastofuna A News sem breska ríkisútvarpið hefur birt á vef sínum. Muhammed lýsir því hvernig árásarmaðurinn gekk inn á staðinn og skaut alla sem hann sá í höfuðið.

Auglýsti sjálfan sig á skilti og fékk stefnumót

$
0
0
Mark tók málin í sínar eigin hendur og það skilaði sér. Hinn einhleypi Mark Rofe tók ansi djarfa ákvörðun fyrir Valentínusardaginn í ár og ákvað að auglýsa sjálfan sig á auglýsingaskilti. Það hefur klárlega borgað sig en Mark er búinn að skipuleggja eitt stefnumót.

Brynja Nordquist lét sig ekki vanta

$
0
0
Elísabet Austmann og Brynja Nordquist.Það var ansi mikið fjör þegar ný Bioeffect-verslun var opnuð á Hafnartorgi á miðvikudaginn. Boðið var upp á freyðivín og makkarónur og var svo sannarlega enginn á röngunni.

Heitasta trendið í bollubakstri

$
0
0
Eins ótrúlega og það kann að hljóma eru tískusveiflur í bollubakstri eins og vera ber enda bollur hádramatísk fæða sem tekur sífelldum breytingum.

Greindist með ristilkrabbamein á 3. stigi

$
0
0
Julie Walters árið 2014. Leikkonan Julie Walters, sem margir þekkja kannski úr Mamma Mia eða Harry Potter, greindist með krabbamein í ristli á þriðja stigi fyrir 18 mánuðum.

Innbrotahrina í vinnuvélar á Norðurlandi og í Reykjavík

$
0
0
Þjófarnir sækjast eftir dýrum en sérhæfðum tækjum, svo sem GPS-mælitækjum sem notuð eru í vinnuvélar líkt og jarðýtur og veghefla. Lögreglunni á Norðurlandi eystra hefur ekki tekist að upplýsa þrjú innbrot í vinnuvélar þar sem dýrum stýritækjum og rafeindabúnaði var stolið. Sams konar þjófnaðir hafa átt sér stað í öðrum landshlutum, meðal annars á Norðurlandi vestra og í Reykjavík.

„Við teljum okkur alsaklaus“

$
0
0
Bátur Sea Trip Reykjavík ehf., Amelia Rose, var vísað til hafnar af Landhelgisgæslunni fyrir meint brot. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins hafnar öllum ásökunum og segir fyrirtækið í fullum rétti. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Bát Sea Trip Reykjavík ehf., Amelia Rose, var vísað til hafnar af Landhelgisgæslunni fyrir meint brot. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins hafnar öllum ásökunum og segir fyrirtækið í fullum rétti.

Fær ekki að snúa aftur á Kvíabryggju

$
0
0
Árásarmaður sem stakk samfanga sinn með eggvopni í gær fær ekki að snúa aftur á Kvíabryggju. Fangi sem ráðist var á með eggvopni í fangelsinu á Kvíabryggju skarst á fæti og eru sár hans ekki talin alvarleg. Lögreglan á Vesturlandi er með árásina til rannsóknar. Fanginn var fluttur aftur á Kvíabryggju eftir að hann fékk aðhlynningu á heilbrigðisstofnun og árásarmaðurinn var fluttur í lokað fangelsi.

Kjósa um verkföll í skólum utan Reykjavíkur

$
0
0
Verkfallsatkvæðagreiðslurnar eiga að hefjast á hádegi næstkomandi þriðjudag og standa til hádegis laugardaginn 29. febrúar. Félagsmenn Eflingar sem starfa hjá einkareknum skólum og hjá sveitarfélögum öðrum en Reykjavíkurborg greiða atkvæði um verkföll í næstu viku. Í tillögum er gert ráð fyrir að verkföll verði ótímabundin og hefjist mánudaginn 9. mars.

Kýldi barn í andlitið á Snorrabraut

$
0
0
Árásin var tilefnislaus, en hvorki móðir drengsins, sem sat við stýrið né drengurinn sjálfur þekktu geranda. Karlmaður um þrítugt var í Landsrétti í dag dæmdur í fimm mánaða fangelsi vegna fjögurra sem hann framdi á árunum 2017 og 2018, meðal annars fyrir að ráðast í annarlegu ástandi, að fjögurra ára dreng sem sat í aftursæti kyrrstæðrar bifreiðar við gatnamót Snorrabrautar og Laugavegs og kýla hann í andlitið.

Kona sem stakk tengdason sinn fær þyngri dóm

$
0
0
Landsréttur sagði að refsing fyrir tilraun til manndráps ætti að lágmarki að vera fimm ár og að í þessu máli væri ekkert sem gæti réttlætt að refsing konunnar yrði undir þeirri lágmarksrefsingu. Landsréttur þyngdi í dag dóm yfir konu um sjötugt sem í fyrra var dæmd til fjögurra ára fangelsisvistar fyrir að stinga tengdason sinn á Akranesi í nóvember 2018. Konan fékk fimm ára dóm í Landsrétti, en hún er sakfelld fyrir tilraun til manndráps.

Þriðji drengurinn á leið í endurhæfingu

$
0
0
Frá aðgerðum lögreglu og slökkviliðs við Óseyrarhöfn 17. janúar. Einn þriggja drengja sem voru í bifreið sem hafnaði í Hafnarfjarðarhöfn í janúar útskrifast af Barnaspítala Hringsins á mánudag fer þaðan í endurhæfingu á Grensásdeild. Hinir drengirnir höfðu þegar verið útskrifaðir.

Rannveig stígur til hliðar tímabundið

$
0
0
Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi. Rannveig Rist, forstjóri álvers Rio Tinto í Straumsvík, mun fara í tímabundið veikindaleyfi frá störfum frá og með næstu viku.

Garðheimar bíða eftir svari frá borginni

$
0
0
Myndin sýnir svæði þar sem íbúðabyggð á að rísa. Í baksýn eru Garðheimar og Vínbúðin sem koma til með að víkja fyrir byggð. Garðheimar hafa átt í viðræðum við Reykjavíkurborg um að flytja starfsemi sína á þróunarsvæðið Stekkjarbakka Þ73 en þar á að byggja gróðurhvelfingu. Ekkert svar hefur fengist frá borginni, þremur og hálfu ári eftir að sótt var formlega um lóðina.

Sala nýrra tvinnbíla bönnuð frá 2035

$
0
0
Sala nýrra tengiltvinn- og tvinnbíla verður bönnuð í Bretlandi frá og með árinu 2035, til að draga úr sótspori landsins. Sala nýrra tengiltvinn- og tvinnbíla verður bönnuð í Bretlandi frá og með árinu 2035, til að draga úr sótspori landsins. Boris Johnson forsætisráðherra tilkynnti þetta á dögunum, en sagt er frá málinu í The Daily Telegraph.

77 ára og ennþá í fantaformi

$
0
0
Harrison Ford sést hér á frumsýnginu á nýjasta verkefni sínu The Call of the Wild. Einn ástsælasti leikari veraldar, Harrison Ford, er orðinn 77 ára gamall og er hvergi nærri farinn að slá af.

Ekki viss hvort hún sé hætt að eignast börn

$
0
0
Kate Hudson veit ekki hvort hún ætli að skella í 4 barnið. Leikkonan Kate Hudson er ekki viss hvort hún sé hætt að eignast börn. Kate og bróðir hennar Oliver Hudson eru bæði leikarar og mættu saman í heimsókn til Ellen DeGeneres.

Haldið ykkur fast! Dior er á leið til Íslands

$
0
0
Franska tískuhúsið Dior var stofnað í Frakklandi 1946. Tískuhúsið er þekkt fyrir hátískufatnað sinn og fylgihluti en það sem við venjulegu konurnar höfum efni á frá merkinu eru snyrtivörur, ilmir og húðvörur.

Eyþór Arnalds og Ástríður eru nýtt par

$
0
0
Eyþór Arnalds og Ástríður Jósefína Ólafsdóttir. Myndin var tekin á þorrablóti á dögunum. Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og tónlistarmaður, er búinn að finna ástina. Sú heppna heitir Ástríður Jósefína Ólafsdóttir og er myndlistarmaður.

Kristján rekinn frá Löwen

$
0
0
Kristján Andrésson er búinn að missa vinnuna í Þýskalandi.Þýska handknattleiksfélagið Rhein-Neckar Löwen rak í dag Kristján Andrésson, þjálfara liðsins. Verður Kristján því ekki við stjórn er liðið mætir Cuenca frá Spáni í EHF-bikarnum á morgun.
Viewing all 19525 articles
Browse latest View live