![Víkingur Heiðar Ólafsson kom fram á Íslensku tónlistarverðlaunum í seinasta mánuði þar sem hann var líka verðlaunaður, en fyrr í kvöld tók hann í London við tveimur verðlaunum á vegum tónlistartímarits BBC.]()
„Ég er djúpt snortinn yfir því að hljóta þessi mikilvægu verðlaun fyrir Bach-plötuna mína,“ segir Víkingur Heiðar Ólafsson sem í London fyrr í kvöld veitti viðtöku tvennum verðlaunum á vegum tónlistartímaritsins BBC, BBC Music Magazine Awards 2019, fyrir hljómplötu sína með verkum eftir Bach.