![Mynd sem Þórdís Högnadóttir tók í eftirlitsflugi TF-SIF yfir gosstöðvunum í dag.]()
Lögreglustjórinn á Húsavík hefur ákveðið í ljósi aukins óróa á gosstöðvunum í dag að loka fyrir alla frekari umferð inn á svæðið norðan Vatnajökuls. Á meðan þessi óvissa varir er ekki talið rétt að hleypa fleirum inn á svæðið. Jafnframt hefur verið sett upp innri lokun á vegi 910 við Vaðöldu.